Júlíus Arnar og Magnús Ragnar sæmdir silfurmerki Selfoss

Aðalfundur mótokrossdeildar Umf. Selfoss fór fram í félagsheimilinu Tíbrá í gær. Ný stjórn var kjörin á fundinum auk þess sem Júlíus Arnar Birgisson og Magnús Ragnar Magnússon voru sæmdir silfurmerki Umf.

Fyrsta umræðupartý UMFÍ

Fyrsta umræðupartý UMFÍ fór fram með pompi og prakt föstudaginn 3. febrúar síðastliðinn. Til partýsins mættu um 50 ungmenni á aldrinum 17 ára og eldri sem og um 30 stjórnendur og starfsmenn héraðssambanda og íþróttafélaga víðs vegar af landinu.

Selfoss tryggði sér sæti í Laugardalshöllinni

Selfoss tryggði sér í gær sæti í bikarhelgi HSÍ sem fram fer í Laugardalshöllinni seinustu helgina í febrúar. Liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum eftir eins marks sigur á Gróttu 20-21 en mikil spenna var í lokin þar sem Grótta misnotaði vítakast á lokasekúndunum.Leikurinn fór rólega af stað og greinilegt að bæði lið ætluðu sér að fara varlega inn í leikinn, Selfoss hafði frumkvæðið í leiknum en eftir tíu mínútur var staðan jöfn 5-5.

Dagur Fannar og Bríet með HSK-met á RIG

Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir, oft nefndir RIG leikarnir, fóru fram í Laugardalshöll um liðna helgi. Sunnlendingar áttu flotta fulltrúa sem allir stóðu fyrir sínu.Guðrún Heiða Bjarnadóttir, Selfossi, stökk 5,41 m og varð önnur í langstökki kvenna.Fjóla Signý Hannesdóttir, Selfossi , keppti í 60 m grindahlaupi og hljóp á sínum ársbesta tíma 9,38 sek og varð fimmta, en hún var búin að hlaupa á 9,44 sek í janúar.Thelma Björk Einarsdóttir, Selfossi, keppti í kúluvarpi en gekk ekki alveg nógu vel þar sem hún gerði öll sín köst ógild.

Stjörnur framtíðarinnar kepptu í Kórnum

Um liðna helgi kepptu efnilegu krökkunum okkar í 7. flokki stelpna og stráka á Ákamótinu í Kórnum í Kópavogi.Ljósmyndir frá foreldrum Umf.

Skrifstofa Umf. Selfoss lokuð 6.-10. febrúar

Vegna vetrarleyfis framkvæmdastjóra og bókara Umf. Selfoss verður skrifstofa Umf. Selfoss lokuð vikuna 6.-10. febrúar.Við bendum fólki á að hér á heimasíðu Umf.

Aðalfundur mótokrossdeildar 2017

Aðalfundur mótokrossdeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.Allir velkomnirMótokrossdeild Umf.