Frábær sigur á Stjörnunni

Selfoss átti flottan leik á móti Stjörnunni í kvöld.  Stjarnan leiddi í upphafi leiks en Selfyssingar tóku fljótt við sér með og jöfnuðu leikinn.  Góð barátta var hjá báðum liðum.  Sebastian byrjaði í markinu og var búinn að loka því vel þegar hann meiddist illa og kom ekki meira við sögu.  Sverrir Andrésson tók hans stöðu og varði vel fyrir aftan góða vörn Selfoss.  Seinni hluta fyrri hálfleiks náði Selfoss mest fjögurra marka forystu en leiddi 15-13 þegar blásið var til leikhlés.  Selfoss byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og náði mest átta marka forystu í stöðunni 28-20.  Munaði þar mestu um frábæran varnarleik, góða markvörslu og agaðan sóknarleik liðsins.

Gleði og einbeiting í fimleikum

Það var troðfull stúkan í Iðu á laugardaginn þegar Nettómótið í hópfimleikum fór fram. Mótið er fyrir keppendur á aldrinum 7-14 ára sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni.Alls tóku 18 lið þátt í mótinu í tveimur aldursflokkum.

Aðalfundur Taekwondodeildar

Aðalfundur Taekwondodeildar Umf. Selfoss verður haldin í Tíbrá fimmtudaginn 27. mars klukkan 19:00.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnirTaekwondodeild Umf.

Selfoss með silfur og tvo brons á Bikarmóti FSÍ

Bikarmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum fór fram fyrir fullu húsi í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi  laugardaginn 15. mars.Helstu úrslit urðu að Gerpla varð bikarmeistari í meistaraflokki kvenna, lið Stjörnunnar varð í öðru sæti og lið Selfossstúlkna í því þriðja. Í flokki mix kepptu tvö lið og hafði blandað lið Gerplu betur gegn blönduðu liði Stjörnunnar.

Selfyssingar töpuðu í Lengjubikarnum

Knattspyrnulið Selfoss léku hvort sinn leikinn í Lengjubikarkeppninn í seinustu viku.Eftir markalausan fyrri hálfleik laut kvennalið Selfoss í gervigras gegn Breiðabliki í A-deild Lengjubikarsins í Fífunni.

Tinna Soffía skrifar undir nýjan samning

Tinna Soffía Traustadóttir hefur samið við Selfoss um áframhaldandi samning til tveggja ára. Tinna Soffía hefur verið einn af burðarásum meistaraflokks kvenna síðan að hann var endurvakinn og hefur hún leikið 40 leiki fyrir Selfoss í efstu deild.Mikil ánægja er innan félagsins að hafa tryggt Tinnu Soffíu áfram næstu tvö árin og er það liður í áframhaldandi uppbyggingu Selfoss á starfi kvennahandboltans.

Aðalfundur Fimleikadeildar

Aðalfundur Fimleikadeildar Umf. Selfoss verður haldin í Tíbrá miðvikudaginn 26. mars klukkan 20:00.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnirFimleikadeild Umf.

Brúarhlaupið hluti af Sumri á Selfossi

Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, hefur ákveðið að færa hlaupið frá hefðbundinni dagsetningu, fyrsta laugardag í september, til laugardagsins 9.

Aðalfundi Mótokrossdeildar frestað til 26. mars

Af óviðráðanlegum orsökum þarf að fresta aðalfundi Mótokrossdeildar Umf. Selfoss til miðvikudagsins 26. mars klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn í aðstöðuhúsi deildarinnar við Hrísmýri.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnirMótokrossdeild Umf.

Stefnumótunarfundur um framtíð Landsmóta UMFÍ

Ungmennafélag Íslands, í samstarfi við HSK, boðar til vinnufundar og stefnumótunarvinnu vegna Landsmóta UMFÍ. Fundurinn verður haldinn í Selinu á Selfossi miðvikudaginn 19.