15.11.2012
Selfoss mætti Haukum á útivelli í 3. flokki í gær. Leikurinn var æsispennandi, sérstaklega í síðari hálfleik, og fór svo að lokum að heimamenn höfðu 1 marks sigur 28-27.
14.11.2012
Bikarmót FSÍ í hópfimleikum verður haldið í íþróttahúsi Vallaskóla við Sólvelli á Selfossi laugardaginn 17. nóvember. Keppni fer fram í meistarflokki kvenna og karla, 1.
14.11.2012
Á föstudaginn 16. nóvember klukkan 19:30 þá fer fram baráttan um Suðurlandið. Þegar við tökum á móti ÍBV í íþróttahúsinu við Vallaskóla.
13.11.2012
Selfyssingar sóttu Aftureldingu2 heim í 32-liða úrslitunum í bikarnum. Afturelding2 byrjaði leikinn ágætlega og náði forystunni í 3-2 eftir 5 mínútur.
13.11.2012
Á laugardaginn fékk 2. flokkur Selfoss lið Aftureldingar í heimsókn. Fyrri hálfeikurinn var ágætlega spilaður af hálfu heimamanna og fór Afturelding þó inn í búningsklefana með 3 marka forystu 16-19.
12.11.2012
98-liðið í 4. flokki karla mætti ÍR í gær á útivelli. Selfoss vann þar nokkuð sannfærandi sigur 16-23 eftir að hafa leitt allan leikinn.
12.11.2012
Stelpurnar spiluðu á laugardaginn við enn eitt stórliðið í N1 deildinni sem inniheldur eina 4 leikmenn íslenska landsliðsins og aðra 2 fyrrvernandi leikmenn þess. Stjörnuliðið er eitt af fjórum bestu liðum landsins ásamt Val, Fram og ÍBV og því var verkefnið stórt fyrir nýliðana okkar. Bæði lið byrjuðu leikinn rólega og svo fór að gestirnir voru fyrri til að taka við sér þegar þeir breyttu stöðunni úr 5-6 í 6-10 á aðeins 5 mín.
12.11.2012
Annað mót vetarins fór fram í 6. flokki Eldri (2001) um helgina .Selfoss-1 vann 1. deildina með því að vinna alla fimm leiki sína. Selfoss hefur nú unnið bæði mótin sem hafa farið fram í þessum árgangi en alls eru fimm mót í vetur.
12.11.2012
Selfoss-2 í 3. flokki mætti KR í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. KR-ingar voru sterkari í leiknum og unnu 33-28 sigur.Nokkuð jafnræði var fyrstu mínúturnar upp í stöðuna 3-3.
11.11.2012
Á morgun mánudaginn 11. nóvember leikur Selfoss bikarleik í 32 liða úrslitum gegn UMFA 2 klukkan 19.15 í íþróttahúsinu við Varmá.Í UMFA 2 eru líklega ungir strákar úr Aftureldingu ásamt einhverjum gömlum.