Fréttir

Elvar Örn og Perla Ruth íþróttafólk Umf. Selfoss

Handknattleiksfólkið Elvar Örn Jónsson og Perla Ruth Albertsdóttir voru valin íþróttakarl og íþróttakona ársins 2017 hjá Ungmennafélagi Selfoss. Verðlaunahátíð Ungmennafélags Selfoss var haldin í félagsheimilinu Tíbrá föstudaginn síðastiliðinn.

Jólasýningin fór fram um helgina

Glæsileg jólasýning fimleikadeildar Selfoss er að baki og vill deildin þakka öllum sem komu að því að gera hana að veruleika mjög vel fyrir.

Martröð á jólanótt – Jólasýning fimleikadeildar

Árleg jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss verður haldin nú á laugardag. Þetta er í tófta sinn sem sýningin er þemabundin og undanfarna daga hafa iðkendur og þjálfarar lagt nótt við dag til að bjóða gestum upp á martröð á jólanótt.

Haustmót 2 fór fram á Selfossi um helgina

Haustmót 2 var haldið í Iðu Selfossi  Laugardaginn 25 nóvember. Mótið byrjaði snemma um  morguninn og stóð yfir allan daginn og fram á kvöld.

Haustmót 2 á Selfossi 25. nóvember

Haustmót 2 verður haldið í Iðu, Selfossi laugardaginn 25. nóvember. Mótið hefst klukkan 09:40 og líkur um 19:15. Selfoss sendir þrjú lið til keppni í 2.

Selfoss sendi tíu lið á Haustmót 1

Fimleikadeild Selfoss sendi 10 lið til keppni á Haustmót 1, sem haldið var í Ásgarði, Garðabæ í umsjón Fimleikdeildar Stjörnunar.

Fullorðinsfimleikar

Fimleikadeild Selfoss bíður upp á 10 skipta fullorðinsfimleika námskeið. Æfingar verða þriðjudags- og miðvikudagskvöld frá 20:30-22:00 í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjaskóla.

Selfossstelpur í landsliðsúrtaki

Helgina 14.-15. október fór fram úrtökuæfing fyrir landslið unglinga. Landsliðið keppir á Evrópumeistaramóti í Portúgal 2018.  Sendar voru sex stelpur frá Selfossi, það voru þær Evelyn Þóra, Inga Jóna, Birta Sif, Sólrún María, Karólína og Auður Helga.

Tanja þjálfar Ísland á EM

Selfyssingurinn Tanja Birgisdóttir er meðal þjálfara íslensku landsliðanna sem taka þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum árið 2018.Fimleikasamband Íslands hefur mannað allar landsliðsþjálfarastöður fyrir Evrópumótið en með reynslu síðustu tveggja móta að leiðarljósi og breyttu skipuriti á skrifstofu FSÍ var umgjörð og skipulagi verkefnisins breytt umtalsvert.Tanja kemur til með að þjálfa blandað lið fullorðinna ásamt Magnúsi Óla Sigurðssyni og Yrsu Ívarsdóttur.

Fimleikavörur.is verða í Baulu á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 13. september munu Fimleikavörur.is mæta í Baulu, íþróttahús Sunnulækjarskóla, með sölubás frá kl. 16:00-19:00. Boðið verður upp á allskonar fatnað til fimleikaiðkunnar.