Fréttir

Fleiri að framlengja

Handknattleiksdeild Selfoss hefur framlengt samninga fjögurra leikmanna til ársins 2017.Um er að ræða báða markverði liðsins þær Áslaugu Ýr Bragadóttir (22) og Katrínu Ósk Magnúsdóttir (18). Auk þess hefur hin öfluga vinstri skytta liðsins Kristrún Steinþórsdóttir (21) framlengt og einnig miðjumaðurinn Hulda Dís Þrastardóttir (17).Handknattleiksdeildin er afskaplega ánægð með að þessar stúlkur skuli hafa trú á áframhaldandi uppbyggingu kvennaboltans og þakkar þeim fyrir þeirra þátt við eflingu handboltans.Það er óneitanlega afskaplega gaman að sjá þessar stelpur framlengja samninga sína hverja á fætur annarri, þær hafa augljóslega trú á framtíðinni, eins og allir aðrir unnendur handbolta hér á Selfossi ættu að hafa.MM

Stelpurnar mæta Val í undanúrslitum

Dregið var í undanúrslitum Borgunarbikarins í seinustu viku og liggur fyrir að Selfoss tekur á móti Valskonum á JÁVERK-vellinum laugardaginn 25.

Leikskrá Selfoss-Þróttur

 fyrir leik Selfoss og Þrótt í 1. deildinni er tilbúin. Leikurinn fer fram á JÁVERK-vellinum í kvöld kl. 19:15. Grill og gaman á vellinum.

Sumarhátið Sunddeildar Selfoss

Sunddeild Selfoss hélt sumarhátíð fyrir iðkendur sína mánudaginn 29. júní. Hátíðin fór fram á gervigrasinu við Vallaskóla þar sem var boðið upp á skemmtilega leiki, frostpinna og svaladrykki.

Tvö töpuð stig á Akureyri

Selfyssingar gerðu annað jafntefli sitt í röð í Pepsi-deildinni þegar þær heimsóttu Þór/KA í seinustu viku.Það var Guðmunda Brynja Óladóttir sem tryggði okkar stelpum jafntefli með glæsilegu skoti utan teigs þegar leiktíminn var að fjara út.Nánar er fjallað um leikinn á vef .Þegar mótið er hálfnað er liðið í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig.Liðið tekur á móti Fylki í Pepsi-deildinni þriðjudaginn 14.

Stelpurnar í Barcelona

Stelpurnar í 3. flokki voru í Barcelona á Spáni seinustu viku þar sem þær öttu kappi við jafnöldrur sínar á knattspyrnumóti sem kennt er við staðinn.

Zoran hættir sem þjálfari Selfoss

Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss og Zoran Miljkovic hafa komist að samkomulagi um að Zoran láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Selfossi þegar í stað.

Svekkjandi tap í erfiðum leik

Strákarnir okkar fóru norður yfir heiðar í gær og kepptu við Þórsara á Akureyri í 1. deildinni.Leikurinn var í járnum allan tímann, Þórsarar ívið sterkari og áttu hættulegri færi en okkar menn voru vel skipulagðir.Selfyssingar skoruðu fyrsta markið á 37.

Einar stýrði U19 til sigurs

U-19 ára landslið karla vann glæstan sigur á Svíum 31-29 í úrslitaleik á Opna Evrópumótinu sem fram fór samhliða handboltamótinu Partille Cup í Svíþjóð.

Sigurvegarar á Partille

Drengirnir á yngra ári í 4. flokki unnu í B-úrslitum á Partille Cup í Gautaborg. Þeir voru hrikalega flottir í sínum leikjum. En þess má geta að allur hópurinn var félagi sínu til mikils sóma á mótinu.Ljósmynd.