Vorannarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1.

4. flokkur leikur heimaleik á föstudag

Næstkomandi föstudag, 13. janúar,  taka strákarnir í A-liði 4. flokks á móti KA mönnum frá Akureyri. Leikurinn fer fram kl. 21:00 í Vallaskóla og verður væntanlega um hörkuleik að ræða.

Guggusund - ungbarnasund hefst 12. og 13. janúar

GUGGUSUND - UNGBARNASUNDNý námskeið í Guggusundi (ungbarnasundi) hefjast 12. og 13. janúar næstkomandi. Umer að ræða ungbarnasund fyrir 0-2 ára, barnasund fyrir 2-4 ára, sundnámskeið fyrir 4-6 ára og sundskóla fyrir börn fædd 2006 og fyrr.Skráning er á  eða í síma 848-1626.Einnig er byrjað að taka við skráningum á næsta námskeið sem hefst um miðjan mars.Bestu kveðjurGuðbjörg H.

Selfoss sigraði Unglingamót HSK í frjálsum

Unglingamót HSK var haldið í Frjálsíþróttahöllinni 8. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Selfoss sendi öflugt lið til leiks og var frammistaða keppenda mjög góð.

Selfoss-strákar 97 unnu brons á Norden Cup

Tvö Selfosslið tóku þátt í Norden Cup sem fór fram í Gautaborg á milli jóla og nýárs. Var þar um að ræða strákalið og stelpulið úr árgangi 1997.

Tap í hörkuleik hjá 3 fl. kvk.

Þegar þessi lið mættust í haust á Selfossi þá hafði Fram betur 19-24 og hafði örugga forystu mest allan leikinn. Í þetta skiptið var munurinn mun minni og var leikurinn frekar jafn allan tímann.

Góður sigur hjá Selfoss 2

Selfoss 2 í 3. flokki karla vann KR-inga í dag 25-22 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Sigurinn er sá þriðji hjá liðinu í fimm leikjum og liðið á góðri stefnu í deildinni.Selfoss náði strax undirtökunum í leiknum og munurinn á bilinu 2-3 mörk lengst af í fyrri hálfleik.  Í síðari hálfleik náði Selfoss mest fimm marka forskoti en KR-ingar náðu að saxa forskotið niður í 2 mörk undir lok leiks.

Slæmur dagur hjá 4. flokki

A- og B-liðin í 4. flokki karla mættu toppliðunum í deildunum í gær. Bæði lið þurftu að sætta sig við töp eftir að hafa verið í ágætum möguleika á að ná meiru út úr leikjunum.

2. flokkur byrjar árið vel

Stjörnumenn úr Garðabæ sóttu okkar drengi heim í gærkvöld og fóru tómhentir heim að lokinni heimsókn þeirri. Selfoss hafði yfir 16-15 í hálfleik og hafði að lokum öruggan sigur, 37-28.

3. flokkur kvenna byrjaði árið á sigri

Það má vel segja það að jólin hafi aðeins setið í stelpunum því að þær náðu ekki alveg að spila jafn vel og þær enduðu síðasta ár.