27.02.2020
Fjórir Selfyssingar voru á dögunum valdir í hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins sem fram fer helgina 28. febrúar til 1. mars nk. Þar æfa strákar og stelpur fædd árið 2006 og fá leikmenn smjörþefinn af því hvernig yngri landslið HSÍ æfa hverju sinni.
26.02.2020
Ný námskeið í hefjast fimmtudaginn 12. mars, föstudaginn 13. mars og laugardaginn 14. mars. Kennt er einu sinni í viku í átta vikur.Eftirfarandi námskeið eru í boði.Fimmtudaga
Klukkan 17:15 námskeið 2 (um 7-14 mánaða)
Klukkan 18:00 námskeið 4 (um 2-4 ára)
Klukkan 18:45 námskeið 5 (um 4-6 ára)
Klukkan 19:30 byrjendahópur (frá um 2 mánaða)Föstudaga
Klukkan 15:45 sundskóli (börn sem er mjög vön og byrja í skóla næsta haust)
Klukkan 16:30 námskeið 3 (um 1-2 ára börn)
Klukkan 17:15 námskeið 4 ( um 2-4 ára börn)
Klukkan 18:00 námskeið 5 (um 4-6 ára börn)
Klukkan 18:45 námskeið 5 (um 4-6 ára börn)Laugardaga
Klukkan 9:15 námskeið 2 (um 7-14 mánaða)
Klukkan 10:00 námskeið 5 (um 4-6 ára)
Klukkan 10:45 byrjendahópur (frá um 2 mánaða)
Klukkan 11:30 byrjendahópur (frá um 2 mánaða)Skráning er hafin og nánari upplýsingar á og í síma 848-1626.
26.02.2020
Stelpurnar í 8. flokki fóru á skemmtilegt handboltamót í Mosfellsbæ í febrúar. Stelpurnar stóðu sig virkilega vel og var gleðin að sjálfsögðu í fyrirrúmi.Ljósmyndir frá foreldrum og þjálfurum Umf.
25.02.2020
Stelpurnar í 7. flokki stóðu sig með stakri prýði á Ákamótinu sem haldið var í Kópavogi í febrúar.Ljósmyndir frá foreldrum og þjálfurum Umf.
25.02.2020
Aðalfundur taekwondodeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá þriðjudaginn 3. mars klukkan 20:00.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnir
Taekwondodeild Umf.
24.02.2020
Selfyssingar áttu harma að hefna gegn Stjörnunni eftir síðasta leik liðanna í Coca Cola-bikarnum. Selfoss vann fjögurra marka sigur í Mýrinni í kvöld, 29-33.Sigur Selfyssinga var aldrei í hættu.
24.02.2020
Meistaramót Íslands í fullorðinsflokki var haldið í Kaplakrika um liðna helgi, 22.-23. febrúar. HSK/Selfoss átti þar góðan hóp keppenda sem öll stóðu sig með prýði.
24.02.2020
Fram kom á aðalfundi júdódeildar, sem fór fram í Tíbrá sl. fimmtudag, að mikil festa er í starfsemi deildarinnar. Iðkendum fjölgar ár frá ári, góður árangur náðist á mótum bæði innanlands sem utan og er fjárhagur deildarinnar afar traustur.
24.02.2020
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við Danijel Majkic um að leika með liðinu í 2. deild í sumar. Danijel er 32 ára og er frá Bosníu.,,Fyrstu dagarnir voru sérstakir hér og tók það mig smá tíma að venjast breyttum aðstæðum en þetta verður bara betra með hverjum deginum," segir Danijel.
Hann getur leyst nokkrar stöður á vellinum í vörn og á miðju.
23.02.2020
Stelpurnar gerðu góða ferð til Eyja og sigruðu ÍBV U með þremur mörkum, 25-28.Selfyssingar tóku frumkvæðið strax í byrjun og stýrðu leiknum frá upphafi, þær voru tveimur mörkum yfir í hálfleik var 12-14. Stelpurnar gerðu þetta spennandi undir lok leiks og náðu Eyjastúlkur að jafna leikinn, 25-25, þegar um fimm mínútur voru eftir. Selfyssingar skoruðu hins vegar síðustu þrjú mörkin og sigldu báðum stigunum heim með þriggja marka sigri, 25-28.Mörk Selfoss: Katla María Magnúsdóttir 10/2, Agnes Sigurðardóttir 6, Katla Björg Ómarsdóttir 5, Elín Krista Sigurðardóttir 4, Hulda Dís Þrastardóttir 2/1, Rakel Guðjónsdóttir 1.Varin skot: Henriette Östergaard 17 (40%)Enn sitja stelpurnar sem fastast í 3.