Júdódeild Umf.Selfoss, fjölmennust á Góumóti.

Keppendur frá Selfossi á Góumóti JR.
Keppendur frá Selfossi á Góumóti JR.

 

Laugardaginn 25.febrúar sl. var haldið Góumót Júdófélags Reykjavíkur. Mótið er æfingamót fyrir yngstu iðkendurnar (7-10 ára), þar sem allir fá þátttökuverðlaun.  Keppendur voru fjörutíu og fimm, frá fimm félögum, en það voru, JR, Júdódeild Grindavíkur, Júdódeild Ármanns, Júdófélag Reykjanesbæjar og Júdódeild Umf.Selfoss, sem öttu þar kappi.  Ánægjulegt var að Júdódeild Umf.Selfoss átti flesta keppendur á mótinu.  Margir þátttakendur voru að taka þátt á sínu fyrsta móti, meðan aðrir hafa keppt mörgum sinnum.  Keppendur stóðu sig frábærlega og margar góðar glímur litu dagsins ljós.  Börnunum er raðað saman eftir aldri og þyngd eins og venja er og keppa stúlkur og drengir stundum saman í flokkum ef þannig stendur á.  Mótið var frábær skemmtun og ótrúlega flott júdó sem þessir ungu iðkendur sýndu.