Frá vinstri eru: Hermann Ólafsson framkvæmdastjórn UMFS, Helgi Sigurður Haraldsson formaður UMFS, Halldór Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri UMFS og Brynhildur Jónsdóttir framkvæmdastjórn UMFS.
Í dag var gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra fyrir Ungmennafélag Selfoss. Í starfið hefur verið ráðinn Halldór Stefán Haraldsson. Halldór hefur starfað mest í kringum handknattleik frá því hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, árið 2010. Hann hefur m.a verið aðalþjálfari hjá Fylki og KA og einnig þjálfað hjá Volda í Noregi. Hann er lærður íþróttafræðingur og einnig er hann að ljúka námi í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.
Framkvæmdastjórn félagsins sá um ráðningarferlið og viðtöl við umsækjendur, sem lauk með ráðningu Halldórs. Framtíðarsýn hans og áhugi á eflingu félagsins, ekki síst innávið, féll vel að framtíðasýn framkvæmdastjórnar og býður hún Halldór velkomin til starfa hjá félaginu og væntir mikils af honum fyrir félagið.